svei mér þá, þvílík leti!!!!flakkari

Er ekki kominn tími á smá færslu??

Eins og sjá má, hef ég ekki verið neitt ofuraktív i blogginu, veit sossum ekki hvort ég nenni að halda þvi úti lengur.
Er jú komin á "Snoppuna" (facebook) eins og flestir, og fæ útrás fyrir bullþörfina þar, að mestu.

Af mér er annars allt ágætt að frétta, keyri ennþá um Norður Jótland, þurfti reyndar að fara í bæði bóklegt og verklegt bílpróf eftir áramótin, var aðeins of þungstíg á olíugjöfinni í fyrrasumar....hmmmm...."hóst"
Þarf svo að halda mér á mottunni, (lesist bremsunni) næstu 3 ár.

Ég stefni á að fara í 2 vikur til Islands i fríinu mínu í júní, frá 15-29. Vonast til að sjá mitt fólk, eða sem flesta allavega. Verð ekki á eigin bíl, þannig að ég verð til "sýnis" á höfuðborgarsvæðinu og norðurlandi. Nánari dagsetningar auglýstar síðar.
Sigga er í skólanum, og gengur vel, þarf ekkert fyrir þessu að hafa. Nafna litla kemur hér oft og er yfir helgi. Sæt og góð stelpa.

Er að fara á næturvakt um helgina, leiðinlegt jobb, og lítið uppúr því að hafa, en verður að gerast.

Læt frá mér heyra aftur á þessu ári........hugsa ég.........lofa engu sko.

En þangað til........farið vel með ykkur þarna úti

flakkari

 

kalkúnaháls og leðurblökuvængir........flakkari

jæja þá, ætti ég að nenna smá???Cool
ok, segjum það, en bara smá!!

Það er annars merkilegur fjandi hvernig spikið fer af manni.Frown
Hef losnað við einhver 25 kíló, síðan ég kom til DK og er ekki ósátt við það, alls ekki sko, hef ekkert gert til þess heldur, annað en að sitja á afturendanum og keyra bíl síðustu 8 mánuðina.Laughing
En........sko......hmmm.....fyrst hurfu brjóstinCry, og voru þau nú EKKI stór fyrir.Embarassed
Svo voru það lærin, þau máttu sossum minnka, en ekki verða að eldspítum.Foot in mouth
Næst var það rassinn, og nú þarf ég púða í sætið á bílnum.Frown
Handleggirnir voru næstir, er farin að finna fyrir axlabeinum og fleiru, og held svei mér þá ég gæti flogið á skinninu sem hangir niður frá upphandleggjunum.Surprised
Viðbein og rifbein eru fundin, og einn daginn uppgötvaði ég að ég var komin með háls!!!Wink
Kalkúnaháls!!!CryUndecided

Fellingar á bakinu að mestu farnar og maginn...já, helv... maginn sko....hann þrjóskast við, en minnkar samt....en MJÖÖÖÖG HÆGT.Cool

En sko, þetta ætti að vera öfugt, maginn ætti að minnka fyrst, síðan aðrir líkamshlutar hægt og rólega, og babsarnir ættu að stækka, ekki hverfa.

En.....nú er ég altsvo mjög dýrsleg, með kalkúnaháls og leðurblökuvængi......hmmmm.....ætti kanski að láta klóna afbrygðið.InnocentCool

En annars er allt í gúddy..as always.......

flakkari animal.Innocent

Taka 2!!!!flakkari

Þá væri kanski ráð að pikka eitthvað meira hér frá Danaveldi.
Klukkan er rúmlega 07 að staðartíma, næturvakt í kvöld og annaðkvöld.
Engin tilhlökkun í gangi, enda oftast lítið um að vera í Hanstholm um helgar.
Síðast þegar ég bloggaði, bjuggum við í Sönderhaa, í litlu húsi þar. Ágætt að vera þar, en í næstu götu bjó mitt gamla jaz, þannig að ég var ekki beint örugg, maður veit aldrei hverju hann getur fundið uppá.
Þannig að.....við fundum okkur annað hús, 4ra herb, næstum úti í sveit, í litlu þorpi sem heitir Södre Draaby á Mors.
Skoðuðum það á fimmtudegi fyrir 3 vikum, fengum lyklana og fluttum svo á laugardeginum eftir.
Og í og með að allavega annar sonur Ole er hér aðra hvora helgi, þá er þetta fínt, 2 svefnherbergi uppi, og eitt hér niðri, og svo nottla stofa, eldhús, bað, innbyggt altan og bílskúr, bara nice.
Það er ca 40 mín keyrsla til Hanstholm, þannig að við vöknum oftast um kl 05, stundum þó fyrr.
Sambúðin gengur annars ágætlega, hann er þó mjög lokaður ennþá, en ég vona að það lagist með tímanum. Ég vissi að þetta tæki tíma, en þar sem þolinmæði er kanski ekki alveg mín sterkasta hlið, þá er þetta soldið mikið erfitt............stundum.
Stundum finnst mér ég vera að lokast inni í skel líka, en reyni að passa að svo verði ekki.
En ég elska þennan "strák" í tætlur, og ætla að gefa honum þann tíma sem hann þarf til að opna sig.

Annars er lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang, vinna, sofa og eta þegar ég má vera að, enda sést það á viktinni. Hef ekki séð þessar tölur þar, síðan ég veit ekki hvenær. :D:D:D

Ég hef reynt að fylgjast með fréttum af ástandinu á Íslandi og get ekki sagt að ég öfundi fólk þar.
Hef áhyggjur af ungunum mínum, og hvort þau klári sig í gegnum þetta.

Jæja, læt þetta bull duga í bili, er hálf andlaus í dag.
Farið vel með ykkur þarna á klakanum, passið hvort annað.

Flakkari í DK

Ég er á lífi!!!!!!!!!!!!!flakkari

Jæja!!! Það er víst kominn tími á að gefa frá sér smá lífsmark.
Ég fór altsvo til DK í byrjun febrúar, var fyrstu 2 vikurnar i Skagen, hjá Siggu. 16. feb. fékk hún svo íbúð í Hanstholm og við fórum þangað. Ég var heima út febrúar og mars, þurfti á hvíld að halda eftir ISS ævintýrið. Að vísu varb ég ekki aðgerðarlaus, því íbúðin sem Sigga fékk, var sú drullugasta sem ég haf séð!!! Þannig að það var skrúbbað og málað á fullu.

Í marslok var svo kominn tími til að athuga með vinnu.
2 af mínum fyrrverandi vinnuveitendum vildu fá mig aftur,svo það var bara að velja.  Það var engin spurning í mínum huga, hvorn þeirra ég vildi. Auðvitað Kurt´s Taxi.

Ég byrjaði að keyra fyrir hann í byrjun apríl. Hann er tengdur inn á svokallað NT plan, þ.e.a.s. við keyrum mest með sjúklinga, lífeyrisþega og þess háttar. Vinnudagur er oft langur, 12-16 tímar, keyrt til Aalaborgar, Viborgar, Odense, Fredrikshafn og fleiri staða, þannig að flökkuþránni er fullnægt. Ósköp gott að koma heim á kvöldin.
Ég keyri svo næturvakt í Hanstholm aðra hverja helgi.
Launin eru ágæt, hef það allavega gott hér.

Um svipað leiti og ég byrjaði hjá Kurt, byrjaði rúmlega fertugur maður hjá honum lika. Við sáumst af og til. við hin ýmsu sjúkrahús, þar sem við köstuðum kveðju hvort á annað.
Ég var sossum ekkert að spá frekar i þennann mann, því karlaveiðar voru EKKI á dagskrá.
Í júní, fær hann svo væga heilablæðingu. Um svipað tekur sig upp krabbamein hjá öðrum bílstjóra. Sá fór langt niður andlega, þannig að "gömlu" bílstjórarnir höfðu nóg að gera við að styðja hann. Ég var jú annar "nýgræðingurinn" svo ég fékk það verkefni að veita hinum stuðning. 
Við töluðum mikið saman í síma, og ég leysti hann af, ef hans dagar voru of langir, eftir hann fór að vinna aftur. 

Hann fór að koma við í kaffi, eftir vinnu og spjalla, þannig að við kynntumst utan vinnutíma líka.
Það var svipað með hann eins og mig, konuveiðar ekki á dagskrá!!!
Hann missti konuna sína úr krabba, fyrir 6 árum og var alls ekki kominn yfir það.
Vinnufélagasambandið þróaðist í vináttu, og stoppaði ekki þar. Aðrar tilfinningar skutu upp kollinum, þrátt fyrir að þær væru ekki velkomnar.
 En til að gera langa sögu stutta, þá flutti ég heim til Ole fyrir rúmri viku síðan. Við ætlum að gefa þessu sambandi góðan tíma til að þróast og sjá hvað skeður í framhaldinu. Ennþá erum við á vináttustiginu, enda bæði drulluhrædd við að binda okkur.
Ég við að lenda í sömu súpunni og áður, og hann er hræddur um að þeir sem hann elskar, deyi frá honum.
Hann fullvissar mig um að hann hvorki berji mig eða komi fullur heim daglega, og ég hann um að ég verði minnst 100 ára.
Þannig að þetta er soldið flókið.

Framhald síðar.......

Flakkari í Danmörku

jamm og jæja.flakkari


Jæja þá, kanski mar ætti að pikka smá, þó letin sé að fara með mig.
Skrapp í Sandgerði í morgun, leiðinda hálkublettir á brautinni, en Súbbinn lét það ekki á sig fá.
Fór í blóðprufu i gærmorgun, tekið nóg af blóði i slátur...hugsa að það hafi verið blóðmör á Sólvangi i dag......lol
En, það voru öll gildi góð, nema blóðsykurinn, hann er örlítið í hærri kantinum, en ekki það mikið að ég fari á lyf. Blóðfitan eins og hjá unglingi!!!!!
Krakkarnir skrifa undir leigusamning á morgun, og ´flytja á laugardag. Ég verð hér í íbúðinni fram að mánaðamótum, Soffía kemur til landsins um helgina og þá skilum við af okkur.
Ég skrepp svo til DK, 4. feb. veit ekkert hversu lengi ég verð eða hvað ég geri í framhaldinu.

Læt þetta duga í bili.

flakkari án kolesterolgensins

lítið nýtt.!!flakkari


Daginn.
Það hefur lítið skeð hér síðan síðast.
Dokksi er ju enn veikur og fer svo til útlanda i næstu viku, verður ekki við fyrr en um miðjan feb.
Fór til heimilislæknis í gær, hun hringdi út og suður, en hvergi tími fyrr en i feb.

Við fengum leigusamningnum hér rift, skilum af okkur 1.feb.
Eyjó og co fengu´litla íbúð í Garðinum, fá hana um mánaðamótin.
Ég fer til DK i einhverjar vikur....ætla að athuga með biðlista hjá sérfræðingum þar.
Annars bara same old, same old.

flakkari

leti!!!flakkari

úff hvað ég er ekki að nenna þessu.....hanga heima yfir enguGráta...átti að fara i taugaleiðnimælinguna i dag, en læknirinn er veikur, fékk tíma á morgun, svo er að sjá hvort karlinn verður orðinn frískur.

Hef verið að spá í hvern fjandann ég á að gera, ef vinnufærnin kemur ekki aftur.....ekki sjens að ég geti verið hér i borg óttans, eins og leiguverðið er, enda hundleiðist mér hér.
Þá er tvennt i stöðunni, finna ódýra íbúð í einhverjum afkima útá landi, eða fara til Siggu í DK.
Mig langar út, en þó ekki......stærri hlutinn af famelíunni er jú hér. Og þó ég sé ekki sú duglegasta að hafa samband, þá einhvernveginn er DK laaaaaaangt i burtu, ef eitthvað kemur uppá.

Kanski ætti ég að vera í DK á veturna og hér á sumrin.....hmmmm

Meira seinna....

flakkari i vangaveltum.

31. desflakkari


Þá er árið 2007 að kveðja, og 2008 að taka við.

Ég hef ekki setið á sömu hundaþúfunni þetta árið, frekar en mörg undanfarin ár.
´
Veit ekki hvort eitthvað eitt, frekar en annað hafi staðið uppúr.

Þó verð ég að segja að brúðkaupið hjá örverpinu um hvítasunnuna og trúlofun eldri sonarins núna í des, séu nokkuð ofarlega í huganum.

Einnig lítil rödd sem svaraði í símann hjá Siggunni þann 23. des.
"Ja, det er Anna, hej bedstemor"
Litli (stóri) gullmoli ömmu sinnar.
Góð jólagjöf að spjalla við hana.

Bætt samband við nána ættingja er ofarlega i huganum, og vona ég að það samband haldi áfram og blómstri með tímanum.

Yngsta ömmuskottan varð ársgömul....úff hvað tíminn flýgur áfram.

En engin rós er án þyrna.......

Föðurbróðir minn, fékk heilablæðingu stuttu fyrir jól, og lamaðist hægra megin, ásamt því sem hann getur ekki tjáð sig með tali.
Síðustu fréttir af honum eru þær, að hann á að fara á Grensás í einhverja þjálfun, og svo norður.

Besti vinur minn, sleit vinskapnum óvænt í byrjun des.
Var dofin lengi á eftir, enda ástæðan ekki gild, að mínu mati.

Ég fór svo til dokksa í morgun.....verð sjúkraskrifuð um óákveðinn tíma.
Ransóknir framundan.

Kvöldið verður rólegt, er ein heima, ungdómurinn á Hvammstanga.
Er með léttreyktan lambahrygg i ofninum, ætla að snæða fyrir framan tv, í náttfötunum.

Óska þeim sem hingað koma, gæfuríks nýjárs, og ástarþakkir fyrir liðnu árin.

Flakkari.

24.desflakkari

Mínar ynnilegustu óskir um gleðilega hátíð til ykkar sem kíkja hér inn. Megi geislar hækkandi sólar lýsa upp skammdegið hjá ykkur öllum.

Flakkari á fullu tungli.....Svalur

Ekki fjarri lagi Gunna mín.flakkari

Fingurnir eru ekki alveg að virka eins og skildiFýldur Annars hefur það verið þunglyndi, þreyta, veikindi og pirringur sem hafa valdið bloggleysi.
Er að ganga frá mér í þessum þrifum, vinstri hendin er farin að minnka all verulega og er til lítis gagns.
Einnig halda þessir háu snatar hjá ISS að yfirvinna sé greidd á dagvinnutaxtaÖskrandi
Veit ekkert verra en að þurfa að standa í stappi við að fá launin rétt.
Er búin að sækja um aðra vinnu, fæ að vita meira um það mál i næstu viku.
Veit að ef ég held áfram i þrifum, þá verður vinnuæfin búin innan árs.

Áfengisneysla sonarins er heldur ekki til að bæta ástandið, drukkið daglega, kvelur mig að horfa uppá hann eyðileggja sjálfan sigGráta
Það vottar ekki fyrir jólaskapi hjá mér, langar bara til að sofa þau af mér.
Þannig að....ekki margt né mikið spennandi að ske hér.
En ég tóri ennþá.

þar til næst.

flakkari ekki hann sjálfur.

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...